Góður jarðvegur er grunnurinn að góðri sprettu

Mold

Við bjóðum upp á gæðamold, harpaða mold, sandblandaða mold og þökumold. Allar hafa þær sinn eiginleika og eru blandaðar með sandi og/eða moltu til að tryggja framúrskarandi árangur.

Trjákurl

Trjákurl

Við bjóðum upp á þrjár gerðir af trjákurli: greinakurl unnið úr trjástofnum og greinum, kurl úr trjástofnum og kurl úr greni, sem er sérstaklega þekkt fyrir að halda sér betur og veita langvarandi vernd.

Túnþökur

Við bjóðum upp á gæða túnþökur sem henta vel fyrir alla garð- og landslagsvinnu. Túnþökurnar okkar eru til í stykkjatali og rúllum.

Um okkur

Moldarblandan Gæðamold ehf. var stofnuð árið 1991 og hefur verið leiðandi fyrirtæki í endurvinnslu á jarðefnaúrgangi síðan þá. Frá upphafi höfum við verið með starfsemina okkar á gömlu sorphaugunum í Gufunesi. Hráefnið sem notað er til framleiðslunnar er allt aðflutt af höfuðborgarsvæðinu. Moldin er grjóthreinsuð og ýmist blönduð með moltu og/eða sandi.